Spjall:Alþingi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Er ekki best að færa þessa síðu á Alþingi íslendinga eða eitthvað álíka og hafa þessa sem umfjöllun um alþingi almennt, eða er betra að hafa það annars staðar. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 05:23, 16 okt 2004 (UTC)
- Alþingi almennt? Í útlöndum eru þingin bara nefnd „þing“. Þing Íslendinga heitir Alþingi og finnst mér að það ætti að halda því nafni og sínum stað hér á Wikipedia. - Svavar L 10:48, 16 okt 2004 (UTC)
![]() |
Eins og Svavar segir þá er bara eitt Alþingi í heiminum margar þjóðir nefna löggjafarþing sín sérstökum nöfnum. Þjóðverjar hafa Bundestag, Svíar hafa Riksdag, Norðmenn hafa Storting, Danir hafa Folketing, Ísrael hefur Knesset og Rússar Dúmuna o.s.frv. --Bjarki Sigursveinsson 11:40, 16 okt 2004 (UTC)
- Já það er víst rétt hjá ykkur, ég þegi þá bara. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 10:57, 19 okt 2004 (UTC)
- Ein vangavelta. Er hægt að segja að alþingismenn séu kosnir beinni kosningu? Er ekki forsetinn kosinn beinni kosningu? En alþingismenn raðað eftir listakosningu? --Sigatlas 16:47, 6 nóv 2004 (UTC)
- Þá meina ég auðvitað forseti Íslands en ekki forseti Alþingis. --Sigatlas 16:49, 6 nóv 2004 (UTC)
- Jú það er sennilega rétt hjá þér. Er ekki talað um hlutfallskosningu í þessu samhengi?--Bjarki Sigursveinsson 19:21, 6 nóv 2004 (UTC)