Spænska veikin
heimsfaraldur inflúensu frá 1918 til 1920 / From Wikipedia, the free encyclopedia
Spænska veikin var inflúensufaraldur sem gekk yfir heiminn árin 1918-20. Veirustofninn heitir H1N1 innan inflúensu af A-stofni. Spænska veikin er mannskæðasta farsótt sem sögur fara af. Talið er að 50 milljónir manna hafi dáið af völdum hennar.