Skrúður
From Wikipedia, the free encyclopedia
64°54′00″N 13°37′00″V Skrúður er 160 metra há hamraeyja út frá mynni Fáskrúðsfjarðar. Þar sem hún er breiðust er hún 530 metrar en á lengd 590 metrar. Fjölskrúðugt fuglalíf er í eynni. Eggja- og fuglatekja var mikil í eyjunni fyrrum. Eyjan var friðlýst árið 1995. Skrúður er gerður úr basalti og súru gosbergi. Skrúður heyrir undir jörðina Vattarnes. Vestan megin við hann er eyjan Andey.