![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9f/Boys_with_hoops_on_Chesnut_Street.jpg/640px-Boys_with_hoops_on_Chesnut_Street.jpg&w=640&q=50)
Skoppa gjörð
From Wikipedia, the free encyclopedia
Skoppa gjörð er barnaleikur og íþrótt þar sem stórum hring er velt eftir jörðu og stýrt af hlut sem spilari heldur á. Leikurinn gengur út á að halda gjörð uppréttri sem lengst og gera ýmsar kúnstir. Oft er notuð felga af reiðhjóli og lítil spýta eða trépinni. Felgan rúllar á stað þegar slegið er í hana með spýtunni og hægt er að stýra henni með að slá í hana. Það var einnig algengt að nota tunnugjörð.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/9f/Boys_with_hoops_on_Chesnut_Street.jpg/640px-Boys_with_hoops_on_Chesnut_Street.jpg)
Afbrigði af þessum leik eru til meðal frumbyggja á ýmsum stöðum á jörðinni og það eru heimildir um að Grikkir til forna hafi spilað slíka leiki.
- Ganymedes í grískri goðafræði skoppar gjörð sem tákn um æsku með hana sem ástargjöf frá Seifi. Teikning frá 500-490 f. Kr.
- Málverkið af stelpu að skoppa með gjörð eftir Pierre-Auguste Renoir frá 1885.
- Þýskur drengur 3-4 ára með hjól og trépinna um 1904. Drengurinn er í matrósafötum.
- Teikning í tískublaði frá 1841 sýnir börn skoppa með gjörð
- Strákar velta gjörðum. Mynd í hollenskri bók um barnaleiki frá um 1860
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7c/Eromenos_hoop_Staatliche_Antikensammlungen_2674_n2.jpg/640px-Eromenos_hoop_Staatliche_Antikensammlungen_2674_n2.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Skoppa gjörð.