Sjómíla
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjómíla (skammstöfuð sml eða nm, úr enska: nautical mile) er lengdareining, sem ekki tilheyrir alþjóðlega einingakerfinu. Algengast er að nota sjómílur í siglingum og flugi, en þær eru einnig oft notaðar í alþjóðalögum og -samningum til að afmarka landhelgi. Ein sjómíla er u.þ.b. sú vegalengd sem svarar til einnar bogamínútu á yfirborði jarðar, en þar sem jörðin er ekki alveg kúlulaga er vegalengdin breytileg eftir hnattstöðu (1849 til 1855 metrar). Til að forðast misskilning er notast við fast, alþjóðlegt gildi á sjómílu, sem er 1852 metrar. Hraðaeiningin hnútur er skilgreind sem ein sjómíla á klukkustund.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/79/Nautic_mile_definition_v2.png/220px-Nautic_mile_definition_v2.png)