Silfurberg
From Wikipedia, the free encyclopedia
Silfurberg er tært afbrigði af kristölluðu kalki (kalsít eða kalkspat) og er mjög fágætt utan Íslands enda gjarnan kennt við Ísland á erlendum tungumálum, sbr. Iceland spar á ensku. Ekkert silfur er í silfurbergi, en nafnið er dregið af því að það er silfurtært. Silfurberg klofnar vel í tígla og klýfur ljósið í tvo geisla sem sveiflast hornrétt hvor á annan. Þessir eiginleikar greina silfurberg frá öðrum kalksteindum. Efnasamsetningin er kolsúrt kalk (kalsíumkarbónat), Ca[CO3], harkan er 3 og eðlismassinn 2,71.