Sigurbjörn Þorkelsson (fæddur 21. mars 1964 í Reykjavík) er íslenskur rithöfundur og ljóðskáld. Hann hóf að skrifa greinar í Morgunblaðið tvítugur að aldri 1984 og hefur fengist reglulega við það eða allt fram á þetta ár 2024, eða í 40 ár. Samtals um 600 greinar. Hann starfaði meðal annars sem framkvæmdastjóri Gídeonfélagsins 1986 - 1998 og forseti þess 2001 - 2004. Forstöðumaður í sumarbúðum KFUM í Vatnaskógi part úr sumri 1989 - 2004 og 2011. Auk þess að vera fundarstjóri á aðalfundum Æskulýðsmiðstöðvar KFUM í Vatnaskógi frá 2000 - 2020. Ritstjóri Hrafnistubréfsins, tímarits Hrafnistuheimilanna 1990 - 1992. Framkvæmdastjóri KFUM og KFUK 1998 - 2000, en félöginn áttu 100 ára afmæli 1999. Hann starfaði sem framkvæmdarstjóri og meðhjálpari Laugarneskirkju 2000 - 2010 og leiddi þar oft guðsþjónustur og kyrrðarstundir auk annarra samverustunda og funda. Hann var einnig umsjónarmaður 10 - 12 ára starfs kirkjunnar í nokkur ár og var umsjónarmaður starfs eldri borgara við Laugarneskirkju allt til 2014. Hafði áður verið safnaðarfulltrúi Laugarneskirkju 1997 - 2001. Fyrirlesari og ráðgjafi hjá Vinnumálastofnun júlí 2010 - desember 2011, hélt 130 - 140 fundi með langtíma atvinnulausu fólki og horfði á þeim tíma í augun á yfir 6.000 manns. Sigurbjörn prédikaði og leiddi reglulega guðsþjónustur í Fríkirkjunni við tjörnina í Reykjavík í afleysingum frá 2013 - 2020. Þá hefur hann einnig prédikað í öðrum kirkjum landsins eða komið fram í öðru kirkjulegu samhengi og víðar í um 700 skipti og flutt prédikanir og hugvekjur, ljóð, erindi og fleira. Hann starfaði á sumrin á táningsárum hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur 1979 - 1981 og sem sölumaður bifreiða hjá Heklu hf frá máí 1982 - 1. janúar 1983. Þá starfaði hann einnig sem skrifstofumaður við m.a. sölu- og innheimtustörf hjá heildverslun Guðmundar Arasonar, GA smíðajárn ehf 1984 - 1991. Hann var 14 ára orðinn leiðtogi í æskulýðsstarfi KFUM og sat í stjórn Kristilegra skólasamtaka, KSS 1983 - 1984. Átti einnig sæti í stjórn Heimdallar 1983 - 1985 og í stjórn landsmálafélagsins Varðar 1985 - 1986.

Sigurbjörn sat meðal annars námskeið í Sálgæslufræðum, Sálgæsla og öldrun, árið 2008 á vegum Endurmenntunar Háskóla Íslands í samstarfi við Guðfræðideild Háskóla Íslands. Á námskeiðinu var litið til flestra þátta öldrunar þ.e. félagsfræðilega, sálfræðilega, lífeðlisfræðilega og andlega og hvernig og hvernig aldraðir hafa ekki einungis mætt margvíslegum missi á langri ævi, heldur einnig öðlast víðtæka reynslu. Sérstök áhersla var lögð á hlutverk sálgæslu með öldruðum og mikilvægi lífsgöngunnar. Alls 45 kennslustundir með fyrirlestrum, hópavinnu, almennum umræðum og verkefnum þar sem nemendur gerðu grein fyrir völdu efni.

Árið 2019 kom bókin, Lífið er ljóðasafn, 312 valin ljóð úr fyrri ljóðabókum frá árinu 2000 - 2020 út á hljóðbók í upplestri höfundar, Sigurbjörns Þorkelssonar. Lengd 4 klst. og 33 mín. Útgefandi var, hljóðbók.is - Einnig er hægt að hlusta á upplesturinn á streymisveitunni, Storytel.

Á sumardaginn fyrsta 2022 kom út hljómdiskurinn, Lifi lífið, með lögum eftir Jóhann Helgason, tónlistarmann og tónskáld við ljóð eftir Sigurbjörn. Flytjendur auk Jóhanns eru á meðal annarra, Páll Rósinkrans, Regína Ósk, Sigríður Guðnadóttir, Snorri Snorrason auk Fósturvísanna sem er hópur úr Karlakórnum Fóstbræðrum. Einnig er hægt að hlusta á plötuna á streymisveitunni, Spotifay eða á Yoy tube.

Í ágúst 2022 var Sigurbjörn sæmdur gullmerki Skógarmanna KFUM fyrir störf sín í þágu Vatnaskógar.

24. maí 2024 gaf Kirkjuhúsið / Skálholtsútgáfan, útgáfufélag Þjóðkirkjunnar út bókina, Kærleikur og friður, 100 valin ljóð eftir Sigurbjörn sem hvað oftast hefur verið vitnað til í ræðu og riti, ekki síst í minningargreinum eða við útfarir. Bókin var gefin út Sigurbirni til heiðurs í tilefni sextugsafmælis hans 21. mars 2024.

Hann er sonur hjónanna Þorkels Gunnars Sigurbjörnssonar (1912 - 2006), verslunarmanns og fyrsta forseta Gídeonfélagsins á Íslandi, 1945 og Steinunnar Pálsdóttur (1924 - 2006) húsmóður og bænakonu.

Föður afi Sigurbjörns var Sigurbjörn Þorkelsson í Vísi (1885 - 1981) einn af stofnendum KFUM árið 1899 og meðal annars fyrsti sóknarnefndarformaður Hallgrímskirkju í Reykjavík og tók sem slíkur fyrstu skóflustunguna að Hallgrímskirkju í Reykjavík Síðar forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkur 1950 - 1965. Föður amma Sigurbjörns var Gróa Bjarnadóttir húsmóðir í Reykjavík (1885 -1918, lést úr spænku veikinni frá sjö börnum). Móður afi, Páll Sigurðsson (1894 - 1971) prentari og einn af sex stofnendum Knattspyrnufélagsins Vals, undir forystu séra Friðriks Friðrikssonar. Móður amma var Margrét Þorkelsdóttir (1898 - 1984) húsmóðir í Reykjavík og bænakona.

Sigurbjörn er giftur Laufeyju Geirlaugsdóttur, söngkonu, kórstjóra og bókara og eiga þau þrjá syni. Barnabörn þeirra Sigurbjörns og Laufeyjar eru átta talsins.

Rithöfundarferill

Sigurbjörn hefur skrifað fjölda bóka, s.s. ljóðabækur, bænabækur, barnabækur, greinasöfn, skáldsögur og smásögur. Þá hefur hann meðal annars skrifað vel á sjöttahundrað greina í Morgunblaðið frá árinu 1984 og um 55 ljóða hans hafa jafnframt birst yfir 700 sinnum í minningargreinum í Morgunblaðinu frá árinu árinu 2000.

Ljóðabækur:

  • Kærleikur og friður, 2024
  • Lífið er ferðalag, 2022
  • Faðmlög, 2020
  • Lífið er ljóðasafn, 312 valin ljóð úr fyrri ljóðabókum 2000 - 2020 (Einnig til á hljóðbók í upplestri höfundar)
  • Lifi lífið, 2017
  • Þakklæti, 2015
  • Sjáðu með hjartanu, 2013
  • Eilíft líf, 2010.
  • Ástríður, 2008.
  • Svalt, 2007
  • Sítenging, SMS 90 smáskilaboð, 2006
  • Lífið heldur áfram, 2002
  • Aðeins eitt líf, 2000

Bænabækur:

  • Í fylgd frelsarans, 2012
  • Í skugga vængja þinna, 2005
  • Vef mig vængjum þínum, 1998
  • Ég hef augu mín til fjallanna, 1997

Barnabækur:

  • Afmæli undirbúið, 2013 (Saga úr, Kærleikurinn mestur, 1999)
  • Ingi finnur jólin, 2009 (saga úr, Kærleikurinn mestur, 1999)
  • Prakkarastrik Bjössa, 2005.
  • Bjössi fer í Vatnaskóg, 2001
  • Kærleikurinn mestur, 1999

Greinasöfn:

  • Kjarni málsins, 2014
  • Góðan daginn, 2004

Skáldsaga:

  • Júlía, 2003

Útgefin erindi:

  • Dauðinn, 2016.
  • Lát engan líta smáum augum á elli þína, 2003

Smásögur:

  • Ögursögur, upplifanir og nokkur minningabrot, 2018.
  • Dýrð sé Guði, saga um bænheyrslu, 2016
  • Greinar trjánna, átta smásögur, 2016
  • Þá munu steinarnir hrópa, 1996
  • Ég gert ekki annað en talað það, sem ég hef séð og heyrt, 1995

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.