From Wikipedia, the free encyclopedia
Sigrún Sigurhjartardóttir húsfreyja á Tjörn í Svarfaðardal (f. 2. ágúst 1888, d. 5. febrúar 1959). Hún var dóttir Sigurhjartar Jóhannessonar bónda á Urðum í Svarfaðardal og fyrri konu hans Soffíu Jónsdóttur sem ættuð var frá Litlulaugum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Eftir grunnnám heima í Svarfaðardal stundaði Sigrún nám við Kvennaskólann á Akureyri 1905-1907. Einnig sótti hún nám við hússtjórnardeild Kvennaskólans í Reykjavík veturinn 1910-1911 og lauk námskeiðum í fatasaumi, útsaumi og fleiri kvenlegum menntum.
Eiginmaður Sigrúnar var Þórarinn Kr. Eldjárn bóndi og kennari. Þórarinn og Sigrún tóku við búsforráðum á Tjörn af föður Þórarins, sr. Kristjáni Eldjárn, árið 1913 og ráku búið til 1959, síðustu árin í sambýli við Hjört son sinn og Sigríði Hafstað konu hans, sem þá tóku við allri jörðinni.
Sigrún og Þórarinn áttu fjögur börn sem upp komust. Þau voru:
Þau ólu einnig upp fósturson, systurson Sigrúnar, Þórarinn Pétursson (1926-1996).
Sigfús Sigurhjartarson alþingismaður var hálfbróðir Sigrúnar.
Hjörtur E. Þórarinsson 1977. Sigrún Sigurhjartardóttir, Tjörn. Í: Gísli Kristjánsson (ritstj), Móðir mín húsfreyjan. Bókaútgáfan Skuggsjá, bls. 257-271.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.