Sigmund Freud
From Wikipedia, the free encyclopedia
Sigmund Freud (6. maí 1856 – 23. september 1939) var austurrískur geðlæknir og taugafræðingur. Hann er upphafsmaður sálgreiningar og kenningar hans hafa haft mikil áhrif á hugmyndir almennings um sálarlífið. Hann var talsmaður þess að starfsemi líkamans mætti skýra út frá efna- og eðlisfræðilegum lögmálum. Lærði dáleiðslu hjá franska taugalækninum Jean Martin Charcot. Freud þróaði aðferð sem kallaðist frjáls hugrenningaaðferð. Hugrenningar sjúklings gefa sálgreinanda vitneskju um innihald dulvitundar. Með dulvitund er átt við þær hugsanir, viðhorf, óskir, hvatir og tilfinningar sem við höfum ekki beinan og greiðan aðgang að. Dulvitund er lykilhugtak í kenningum Freuds.
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: klára endurskipulagningu og skrif, heimildir, málfar |
Staðreyndir strax Fæddur, Dáinn ...
Sigmund Freud | |
---|---|
Fæddur | 6. maí 1856 |
Dáinn | 23. september 1939 (83 ára) |
Menntun | Vínarháskóli |
Maki | Martha Bernays (g. 1886) |
Börn | 6 |
Undirskrift | |
Loka