![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/57/Shenyang-location-MAP-in-Liaoning-Province-China.jpg/640px-Shenyang-location-MAP-in-Liaoning-Province-China.jpg&w=640&q=50)
Shenyang
höfuðborg Liaoning héraðs í Kína / From Wikipedia, the free encyclopedia
Shenyang (eða Shen-yang ) (kínverska: 沈 阳; rómönskun: Shěnyáng) er höfuðborg Liaoning héraðs í Alþýðulýðveldinu Kína. Borgin er byggð á flatri láglendissléttu í mið-norðurhluta Liaoning héraðs, við rætur Changbai-fjalla og í jaðri hinnar víðáttumiklu Mansjúríu-sléttu. Shenyang er miðstöð viðskipta og verslunar, samgangna, mennta og menningar í Norðaustur Kína. Hún er ein mesta iðnaðarborg Kína.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/05/Beiling_Park_Zhao_Mausoleum_%28Qing_dynasty%29_drone_view_7.jpg/640px-Beiling_Park_Zhao_Mausoleum_%28Qing_dynasty%29_drone_view_7.jpg)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/57/Shenyang-location-MAP-in-Liaoning-Province-China.jpg/640px-Shenyang-location-MAP-in-Liaoning-Province-China.jpg)
Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Shenyang um 9,1 milljónir manna. Borgin var áður þekkt undir heitinu Fengtian (eða Manchu, Mukden).
![Mynd af Mansjú höll í Shenyang borg í Liaoning héraði í Kína.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/88/Mukden_Palace_in_Shenyang.jpg/640px-Mukden_Palace_in_Shenyang.jpg)
![Mynd af Zhao grafhýsinu í Shenyang borg. Það er nú á Heimsminjaskrá UNESCO.](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/31/BeilingTripleDecker.jpg/320px-BeilingTripleDecker.jpg)
Saga Shenyang borgar verður rakin í meira en 2.000 ár. Mansjú þjóðin lagði undir sig borgina á 17. öld og notaði hana stuttlega sem höfuðborg Tjingveldisins eða Mansjúveldisins. Tími Tjingveldisins (1636 - 1912) er farsælasta tímabil borgarinnar enda átti keisarafjölskyldan ættir að til Mansjúríu þar sem borgin er. Í borginni eru margir sögulegir staðir sem vísa til þessa tíma: Keisarahöllin í Shenyang, fyrrum konungsbústaðir, keisaragrafir, hof og pagóður.
Að sama skapi varð borgin vitni að myrkrum tíma í sögu Kína í stríði Rússlands og Japanska keisaradæmisins 1904–05, sem var í Shenyang (þá Mukden) og færði Japan ítök í Mansjúríu. Japan tók yfir borgina 1931. Þegar þeir gáfust uppgjöf árið 1945 var Shenyang áfram vígi lýðveldishersins en kommúnistar náðu borginni árið 1948.