Seglskúta
From Wikipedia, the free encyclopedia
„Skúta“ vísar hingað. Einnig er til nafnið Skúta.
Seglskúta, seglskip, seglbátur eða kjölbátur er skip sem notast við segl til að láta vindinn knýja sig áfram. Seglskútur áttu sitt blómaskeið á skútuöld, þegar þær urðu gríðarlega stórar og voru ráðandi tækni í alþjóðaviðskiptum og sjóhernaði. Stærstu skipin urðu til á 18. og 19. öld en um miðja 19. öld tóku gufuskip og síðar vélbátar við.