From Wikipedia, the free encyclopedia
Scrabble eða skrafl (áður krossgátuspilið) er borðspil sem tveir til fjórir geta spilað í einu. Leikmenn eiga að mynda orð úr staftöflum, þar sem sérhver stafur gefur ákveðinn fjölda stiga, sem þeir draga af handahófi úr pokanum á leikborð sem skipt er í 15x15 reiti, þar sem sérhver reitur getur haft mismunandi áhrif á stigafjöldann. Hver leikmaður verður að tengja orðið við þá stafi sem búið er að leggja á borðið og leggja staftöflurnar annaðhvort lárétt eða lóðrétt á spilaborðið, þannig að þær myndi eitt samfellt orð. Sá vinnur sem fær flest stig.
Bandaríski arkitektinn Alfred Mosher Butts bjó spilið til árið 1938 sem afbrigði af Lexiko, spili sem hann hafði áður hannað. Stafagildin byggðu á hans eigin tíðnigreiningu stafa í dagblaðinu The New York Times. Hann kallaði nýja spilið Criss-Crosswords. Scrabble-nafnið kom frá James Brunot sem keypti réttinn til að framleiða spilið árið 1948. Nú er spilið framleitt af Hasbro.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.