![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b9/Nitric-acid.png/640px-Nitric-acid.png&w=640&q=50)
Saltpéturssýra
From Wikipedia, the free encyclopedia
Saltpéturssýra[1] (kallað aqua fortis eða „sterkt vatn“ í gullgerðarlist) er eitruð sýra sem er afar ætandi. Fræðiheitið er vetnisnítrat og efnafræðiformúlan HNO3.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/b9/Nitric-acid.png/640px-Nitric-acid.png)
Hrein saltpéturssýra er litlaus vökvi með þéttleikann 1,522 g/cm³. Hún verður að föstu efni við -42 °C og myndar þá hvíta kristalla en sýður við 83 °C. Niturdíoxíð (NO2) losnar úr saltpéturssýru við suðu og jafnvel við herbergishita samkvæmt þessari efnaformúlu:
- 4HNO3 → 2H2O + 4NO2 + O2 (72 °C)
Því ætti að geyma saltpéturssýru við hitastig undir 0 °C til að hindra slíkt efnahvarf. (NO2) sem er leyst upp í saltpéturssýru litar sýruna gula eða rauða við hærra hitastig. Hrein saltpéturssýra verður hvít þegar hún kemst í snertingu við loft en sýra blönduð niturdíoxíði myndar rauðbrúna gufu.