![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/6/6b/Robert_Lewandowski_2018%252C_JAP-POL_%2528cropped%2529.jpg/640px-Robert_Lewandowski_2018%252C_JAP-POL_%2528cropped%2529.jpg&w=640&q=50)
Robert Lewandowski
From Wikipedia, the free encyclopedia
Robert Lewandowski (fæddur 21. ágúst, 1988) er pólskur knattspyrnumaður sem spilar með FC Barcelona og pólska karlalandsliðinu í knattspyrnu. Hann hefur skorað yfir 320 mörk í Bundesliga og er sá næstmarkahæsti í deildinni frá upphafi. Í öllum keppnum er Lewandowski með nær 650 mörk. Hann er í 8. eða 15. sæti yfir markahæstu menn allra tíma eftir því hvaða viðmið eru notuð.
Staðreyndir strax Upplýsingar, Núverandi lið ...
Robert Lewandowski | ||
![]() | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Robert Lewandowski | |
Fæðingardagur | 21. ágúst 1988 (1988-08-21) (35 ára) | |
Fæðingarstaður | Varsjá, Pólland | |
Hæð | 1,85 m | |
Leikstaða | Framherji | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | FC Barcelona | |
Númer | 9 | |
Yngriflokkaferill | ||
1997-2006 | Varsovia Warszawa Delta Warszawa Legia II Warszawa | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2005 | Delta Warsaw | 17 (4) |
2005-2006 | Legia Warsaw II | 12 (2) |
2006–2008 | Znicz Pruszków | 59 (36) |
2006-2007 | Znicz Pruszków II | 2 (2) |
2008-2010 | Lech Poznań | 58 (32) |
2010-2014 | Borussia Dortmund | 131 (74) |
2014-2022 | Bayern München | 253 (238) |
2022- | FC Barcelona | 68 (41) |
Landsliðsferill2 | ||
2007 2008 2008- |
Pólland U-19 Pólland U-21 Pólland |
1 (0) 3 (0) 148 (82) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Loka
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2d/LewandowskiR.jpg/320px-LewandowskiR.jpg)
Lewandowski hóf atvinnuferil sinn árið 2006 með Znicz Pruszków þar sem hann var markahæstur í 2. og 3. deildunum. Árið 2008 fór hann til efstudeildarliðsins Lech Poznań og vann með þeim deildina (Ekstraklasa) tímabilið 2009–10.