![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/15/Dj%25C3%25BApav%25C3%25ADk.jpg/640px-Dj%25C3%25BApav%25C3%25ADk.jpg&w=640&q=50)
Reykjarfjörður (Ströndum)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Reykjarfjörður á Ströndum er fjörður í Árneshreppi, norðan við Veiðileysu og sunnan við Trékyllisvík. Vegurinn í Reykjarfjörð var opnaður árið 1965, en hann er venjulega ófær yfir háveturinn.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/15/Dj%C3%BApav%C3%ADk.jpg/640px-Dj%C3%BApav%C3%ADk.jpg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Reykjarfjörður (Ströndum).
Við fjörðinn eru eða hafa verið þrjú lítil þorp; Kúvíkur sem voru verslunarstaður fyrr á öldum eru við fjörðinn sunnanverðan. Djúpavík með síldarverksmiðjunni er innarlega í firðinum. Yst við fjörðinn norðanverðan er svo Gjögur sem var mikilvæg hákarlaverstöð á 19. öld. Á Gjögri er flugvöllur og er flogið þangað reglulega allan ársins hring.