Reglugerð Evrópusambandsins um rafrænan úrgang
From Wikipedia, the free encyclopedia
Reglugerð Evrópusambandsins um rafrænan úrgang (enska: Waste Electrical and Electronic Equipment Directive, skammstafað sem WEEE Directive) er reglugerð Evrópusambandsins númer 2002/96/EC sem skrifuð var í evrópsk lög í febrúar 2003 ásamt RoHS-reglugerðinni númer 2002/95/EC. Reglugerðin setti markmið um söfnun, endurvinnslu og meðhöndlun á raftækjum af öllu tagi. Lágmarksmarkmiðið um söfnun rafræns úrgangs var 4 kg á manni fyrir árið 2009. Með RoHs-reglugerðinni voru takmarkanir innleiddar um þau efni sem evrópskir framleiðendur mættu nota í ný raftæki.
Táknið sem Evrópska ráðið tók upp til að standa fyrir rafrænan úrgang og er yfirstrikuð tunna með hjólum, annaðhvort með eða án svartrar línu undir tákninu. Línan þýðir að varan var sett á markað eftir 2005 þegar reglugerðin tók gildi. Vörur án svörtu línunnar voru framleiddar á milli 2002 og 2005.