Refir
Rándýr af hundaætt / From Wikipedia, the free encyclopedia
Refir eru lítil og meðalstór rándýr af hundaætt (Canidae). Til eru um 27 tegundir refa. Refir lifa í flestum heimsálfum en algengastir þeirra eru rauðrefir (Vulpes vulpes). Refir eru þekktir úr þjóðsögum margra þjóða um allan heim.
Staðreyndir strax Refur, Vísindaleg flokkun ...
Refur | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Loka
Nöfn á refum eru ólík nöfnum flestra annarra hunddýra. Karldýrið er oftast nefnd steggur eða högni en einnig kemur fyrir að það séu nefnt refur. Kvendýrið er nefnt læða eða bleyða en einnig kemur fyrir að það sé nefnt tófa. Afkvæmi refa kallast yrðlingar en í refarækt er þó oft talað um hvolpa.