![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/83/Four_AA_batteries.jpg/640px-Four_AA_batteries.jpg&w=640&q=50)
Rafhlaða
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rafhlaða eða batterí er tæki sem geymir orku og gerir hana aðgengilega á formi rafstraums. Slík geymsla á rafstöðu-formi er hagnýt til vissra sérhæfðra nota (í þétti) en flestar rafhlöður eru gerðar úr rafefnafræðilegum tækjum svo sem einni eða fleiri galvanískum sellum, eða nú nýjast brunasellum og kunna að byggja á enn öðrum gerðum af tækni í framtíðinni. Rafhlöðuiðnaðurinn veltir 180 milljörðum króna á ári. Gera má ákveðinn greinarmun á rafhlöðu og rafgeymi. Samkvæmt venjulegri málnotkun er rafgeymirinn stærri og má líta svo á að hann sé settur saman úr stökum rafhlöðum. Þennan greinarmun má gera tæknilegan með því að skoða spennuna. Stakar rafhlöður eða „sellur“ gefa yfirleitt spennu á bilinu 1,5-4,5 V. Hlutur sem gefur meiri spennu en það er örugglega settur saman úr stökum sellum og má kalla hann rafgeymi. Dæmi er blýsýrurafgeymir, eða bílrafgeymir, sem notaður er í bíla. Hann er settur saman úr allnokkrum „sellum“ og gefur 12 V spennu.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/83/Four_AA_batteries.jpg/320px-Four_AA_batteries.jpg)