Rafbók
From Wikipedia, the free encyclopedia
Rafbók er bók sem gerð er aðgengileg á stafrænu formi og samanstendur af texta og/eða myndum.
Rafbækur má lesa með meðal annars í borðtölvu, farsíma, snjalltöflu eða lestölvu. Rafbókum er hægt að hlaða niður frá rafbókaveitum á ýmsum vefsíðum og netverslunum eins og Amazon.com og iBookstore. Oftast eru rafbækur útgáfur prentaðra bóka, en rafbækur eru ekki endilega prentaðar líka. Helstu tæki sem eru notuð til að lesa rafbækur eru Amazon Kindle, Borders Kobo, Sony Reader og iPad.
Rafbækur geta verið með mismunandi skráarsniði; textaskrá, ritvinnsluskjal eða vefsíða. Algengustu skráarsnið rafbóka eru til PDF, ePub, Kindle og MobiPocket.
Rafbækur er hægt að fjölfalda, dæmi eru um þeim sé dreift án þess að rithöfundur eða útgefand fái greitt fyrir.