Qaanaaq
From Wikipedia, the free encyclopedia
77°28′00″N 69°14′00″V Qaanaaq er þorp í sveitarfélaginu Avannaata á norðvestur-Grænlandi. Það er eini eiginlegi byggðakjarninn á Norður-Grænlandi (Avannaa). Upphaf hans var verslunarstöðin "Kap York Stationen Thule" sem stofnuð var af Knud Rasmussen og Peter Freuchen árið 1910. Núverandi byggðarlag varð til þegar allir íbúar gamla Thule-þorpsins voru fluttir þangað árið 1953.