Frumtala
náttúruleg tala, sem er stærri en 1 og er ekki margfeldi tveggja smærri náttúrulegra talna / From Wikipedia, the free encyclopedia
Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir yfirlit yfir aðrar merkingar „Frumtala“
Frumtala (eða prímtala) er náttúruleg tala, sem er stærri en 1 og er ekki margfeldi tveggja smærri náttúrulegra talna. Talan 1 er ekki skilgreind sem frumtala þar sem hún er eining og gengur því upp í sérhverja náttúrulega tölu. Samsettar tölur (eða þáttanlegar tölur) eru andstæður frumtalna en það eru tölur sem hafa jákvæðan deili annan en 1 og sjálfa sig.