Lyklar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lyklar (fræðiheiti: Primula)[1] er ættkvísl, af aðallega jurtkenndum[2] plöntum í Maríulykilsætt. Einungis tvær tegundir hafa fundist villtar á Íslandi; Davíðslykill (P. egaliksensis) og Maríulykill (P. stricta). Þekktar garðplöntur eru allnokkrar; P. auricula (Mörtulykill), P. veris (Sifjarlykill) and P. elatior (Huldulykill). Þessar tegundir og margar aðrar hafa verið mikils metnar vegna blómfegurðar. Þær hafa verið gríðarmikið ræktaðar og kynblandaðar - í tilfelli Laufeyjarlykils P. vulgaris, í mörg hundruð ár. Primula eru upprunnar úr tempraða belti norðurhvels, suður til fjalla Eþíópíu, Indónesíu og Nýju Guineu, og í tempraða belti Suður Ameríku. Næstum helmingur þekktra tegunda er frá Himalajafjöllum.[2]
Maríulyklar | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Tegundir | ||||||||||||
margar; sjá texta | ||||||||||||
Primula er með allt að 500 tegundir í hefðbundnum flokkunarfræðum, og fleiri ef skyldar ættkvíslir eru taldar með.[3]