![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/10/Maquette_du_Pourquoi-Pas_IV.jpg/640px-Maquette_du_Pourquoi-Pas_IV.jpg&w=640&q=50)
Pourquoi-Pas ?
From Wikipedia, the free encyclopedia
Pourquoi-Pas ? (sem þýðir: „hvers vegna ekki?“ á íslensku, borið fram Púrkva-pa) var heiti sem franski vísindamaðurinn Jean-Baptiste Charcot notaði á nokkur rannsóknarskip sín. Frægast þessara skipa var Pourquoi-Pas ? IV sem var smíðað fyrir hann í Saint-Malo og sem hann ætlaði sér að nota í annan leiðangur sinn til Suðurskautslandsins. Smíði skipsins hófst 1907 og því var hleypt af stokkunum 18. maí 1908. Pourquoi-pas? var 825 tonna þrímastra barkskip með gufuvél, 57 metrar að lengd. Skipsskrokkurinn var allur styrktur með stál- og sinkþynnum. Á skipinu var gríðarlega hár strompur og það hýsti þrjár fullbúnar rannsóknarstofur og bókasafn.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/1/10/Maquette_du_Pourquoi-Pas_IV.jpg/640px-Maquette_du_Pourquoi-Pas_IV.jpg)