![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d7/Petr_Pavel.jpg/640px-Petr_Pavel.jpg&w=640&q=50)
Petr Pavel
Forseti Tékklands / From Wikipedia, the free encyclopedia
Petr Pavel (f. 1. nóvember 1961) er tékkneskur stjórnmálamaður, fyrrum hershöfðingi í tékkneska hernum og núverandi forseti Tékklands. Hann var áður formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins frá 2015 til 2018 og yfirmaður herafla Tékklands frá 2012 til 2015.
Staðreyndir strax Forseti Tékklands, Forsætisráðherra ...
Petr Pavel | |
---|---|
![]() Petr Pavel árið 2023. | |
Forseti Tékklands | |
Núverandi | |
Tók við embætti 9. mars 2023 | |
Forsætisráðherra | Petr Fiala |
Forveri | Miloš Zeman |
Formaður hermálanefndar Atlantshafsbandalagsins | |
Í embætti 26. júní 2015 – 29. júní 2018 | |
Forveri | Knud Bartels |
Eftirmaður | Stuart Peach |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 1. nóvember 1961 (1961-11-01) (62 ára) Planá, Tékkóslóvakíu (nú Tékklandi) |
Stjórnmálaflokkur | Óflokksbundinn (1989–) Kommúnistaflokkur Tékkóslóvakíu (1985–1989) |
Maki | Hana Pavlová (g. 1986–2001) Eva Pavlová (g. 2004) |
Börn | 3 |
Undirskrift | ![]() |
Loka
Pavel var kjörinn forseti Tékklands í seinni umferð forsetakosninga þar í landi þann 28. janúar 2023. Hann tók við af Miloš Zeman sem forseti þann 9. mars.