![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4b/Pericles_Pio-Clementino_Inv269_n2.jpg/640px-Pericles_Pio-Clementino_Inv269_n2.jpg&w=640&q=50)
Períkles
From Wikipedia, the free encyclopedia
Períkles (forngríska: Περικλῆς, 495 – 429 f.Kr.) var gríðarlega áhrifamikill stjórnmálamaður, ræðumaður herforingi í Aþenu á klassíska tímanum, einkum á tímabilinu milli Persastríðanna og Pelópsskagastríðsins.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4b/Pericles_Pio-Clementino_Inv269_n2.jpg/640px-Pericles_Pio-Clementino_Inv269_n2.jpg)
Períkles hafði svo mikil áhrif á aþenskt samfélag að sagnfræðingurinn Þúkýdídes, sem var samtímamaður hans, kallaði hann „fyrsta borgara Aþenu“. Períkles gerði Deleyska sjóbandalagið að aþensku veldi og var leiðtogi Aþeninga á fyrstu tveimur árum Pelópsskagastríðsins. Tíminn sem hann var við völd í Aþenu, frá 461 f.Kr. til 429 f.Kr., er stundum kallaður „Períklesaröldin“.
Períkles var listaunnandi og studdi mjög við bakið á listamönnum, skáldum og heimspekingum. Stuðningur hans við listamenn var ein meginorsök þess að Aþena blómstraði sem menningarborg. Hann lét byggja ýmis hof á Akrópólishæð, þ.á m. Meyjarhofið (Parþenon).