Meyjarhofið í Aþenu
From Wikipedia, the free encyclopedia
Meyjarhofið (forngríska Παρθενών) í Aþenu er grískt hof helgað verndara borgarinnar, viskugyðjunni Aþenu. Hofið var byggt á seinni hluta 5. aldar f.Kr. og stendur á Akrópólishæð í miðborg Aþenu. Hofið, sem er byggt í dórískum stíl, er án efa þekktasta gríska mannvirkið frá fornöld.