![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d2/ItalyIronAge.png/640px-ItalyIronAge.png&w=640&q=50)
Oskíska
From Wikipedia, the free encyclopedia
Oskíska er útdautt indóevrópskt tungumál á ítalísku greininni. Oskíska var töluð um mestan hluta Suður-Ítalíu síðustu fjórar aldirnar f.Kr. fyrir innrás latínunnar og Rómverja. Fyrir norðan oskískuna var töluð úmbríska sem líka var á sömu grein. Oskíska og úmbríska voru þó fjarlægari latínunni en falíska sem enn var töluð norðar. Mállýskumun þann sem þróaðist í latínu og ítölsku má að nokkru rekja til þessara umkomnu mála. Oskískan tórði einna lengst í Pompeii þar sem hún var enn töluð 80 árum e.Kr.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d2/ItalyIronAge.png/320px-ItalyIronAge.png)
Staðreyndir strax Tungumálakóðar ...
Oskíska | ||
---|---|---|
Málsvæði | Samnium, Kampanía, Lúkanía, Kalabría og Abrútsi | |
Heimshluti | Suður-Ítalía | |
Ætt | Indóevrópskt Ítalískt Oskísk-úmbrískt Oskíska | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-2 | osc | |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Loka