Orrustan við Liège
From Wikipedia, the free encyclopedia
Orrustan við Liège var upphafsorrusta fyrri heimsstyrjaldarinnar, þegar Þjóðverjar réðust inn í Belgíu. Árásin á borgina hófst þann 5. ágúst 1914 og orrustunni lauk 16. ágúst með sigri Þjóðverja. Erich Ludendorff hershöfðingi leiddi Þjóðverja til sigurs í orrustunni. Þrátt fyrir ósigur Belga tókst þeim að tefja sókn Þjóðverja til muna, en þeir stefndu áfram í gegnum Belgíu og til Frakklands.
Staðreyndir strax Dagsetning, Staðsetning ...
Orrustan við Liège | |||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Hluti af fyrri heimsstyrjöldinni | |||||||||
Belgískir hermenn í varnarlínu, við orrustuna um Liège 1914. | |||||||||
| |||||||||
Stríðsaðilar | |||||||||
Þýska keisaradæmið | Belgía | ||||||||
Leiðtogar | |||||||||
Otto von Emmich Erich Ludendorff |
Gérard Leman (tekinn til fanga) | ||||||||
Fjöldi hermanna | |||||||||
28.900–31.200 hermenn 140 byssur[1] |
32.000 hermenn 280 byssur.[2][3] | ||||||||
Mannfall og tjón | |||||||||
3.300 (þann 8. ágúst)[4] |
6.000–20.000 þ. á m. 4.000 teknir höndum |
Loka