Norræni þróunarsjóðurinn
Alþjóðleg fjármálastofnun á sviði umhverfis- og loftslagsmála / From Wikipedia, the free encyclopedia
Norræni þróunarsjóðurinn (NDF) er sameiginleg alþjóðleg fjármálastofnun norrænu ríkjanna, sem veitir lán og styrki til loftslagstengdra þróunarverkefna í fátækustu ríkjum Afríku, Asíu og Rómönsku-Ameríku. Sjóðurinn var stofnaður árið 1989 og aðalskrifstofa hans er í Helsinki, Finnlandi.[1]
Sjóðurinn, sem er í eigu norrænu ríkjanna fimm, Íslands, Danmörku, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar, heyrir undir Norrænu ráðherranefndina.[2]