![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/87/Social_democratic_parties_in_Nordic_countries_-_percentage.jpg/640px-Social_democratic_parties_in_Nordic_countries_-_percentage.jpg&w=640&q=50)
Norræna velferðarkerfið
From Wikipedia, the free encyclopedia
Norræna velferðarkerfið eða norræna módelið er hugtak sem er stundum notað til að vísa til svipaðrar nálgunar Norðurlandanna til skatta, samtryggingar og ríkisafskipta á sviði velferðarmála, menntunar og heilbrigðisþjónustu. Norrænu velferðarkerfin byggja á ríkisborgararétti og löndin eiga samstarf sín á milli hvað varðar flutning réttinda við flutning ríkisborgara eins ríkis til annars (Norðurlandasamningur um almannatryggingar). Í raun er það ekki svo að til sé eitt kerfi eða módel sem gildir á öllum Norðurlöndunum heldur er um að ræða mikla skörun og hliðstæða löggjöf á ákveðnum sviðum. Það sem sögulega hefur verið talið einkenni á norræna velferðarkerfinu er stór skattafleygur, hátt atvinnuhlutfall og mikill jöfnuður (lágur Gini-stuðull).
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/8/87/Social_democratic_parties_in_Nordic_countries_-_percentage.jpg/640px-Social_democratic_parties_in_Nordic_countries_-_percentage.jpg)