Noregur í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
yfirlit um þátttöku Noregs í Eurovision / From Wikipedia, the free encyclopedia
Noregur hefur tekið þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 59 sinnum síðan að frumraun landsins í keppninni átti sér stað árið 1960, og hefur aðeins verið fjarvera í tvö skipti síðan. Árið 1970 sniðgekk landið keppnina vegna ágreininga varðandi kosningakerfisins, og árið 2002 þegar það fékk ekki nógu góða niðurstöðu árið áður til að taka þátt í keppninni eftir. Norska undankeppnin er Melodi Grand Prix.
Noregur | |
---|---|
Sjónvarpsstöð | NRK |
Söngvakeppni | Melodi Grand Prix |
Ágrip | |
Þátttaka | 59 (56 úrslit) |
Fyrsta þátttaka | 1960 |
Besta niðurstaða | 1. sæti: 1985, 1995, 2009 |
Núll stig | 1963, 1978, 1981, 1997 |
Tenglar | |
Síða NRK | |
Síða Noregs á Eurovision.tv |
Fyrir 1985 var besti árangur Noregs þriðja sæti sem var náð af Åse Kleveland árið 1966. Noregur hefur í heildina unnið keppnina þrisvar, sem var náð af Bobbysocks (1985), Secret Garden (1995) og Alexander Rybak (2009). Noregur hafnaði einnig í öðru sæti í keppninni árið 1996 með Elisabeth Andreassen, sem var fyrrum meðlimur Bobbysocks. Landið hefur endað í seinasta sæti í ellefu skipti, fjögur af þeim fengu núll stig. Árið 2019 varð Noregur þriðja landið til að vinna símakosninguna en ekki keppnina í heild sinni (hin verandi Ítalía árið 2015 og Rússland árið 2016). Noregur hefur endað í topp-5 ellefu sinnum.