Njóli
From Wikipedia, the free encyclopedia
From Wikipedia, the free encyclopedia
Njóli (einnig nefndur heimula, heimulunjóli eða fardagakál) (fræðiheiti: Rumex longifolius) er stórvaxin fjölær jurt af ættkvísl súra. Hann hefur flust til Íslands af mannavöldum og vex í dag einkum í kauptúnum og við sveitabæi. Njóla fjölgar mikið þar sem áburðarríkt ræktarland hefur verið yfirgefið. Blóm njóla eru græn.
Njóli | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Mynd af njóla tekin við Mývatn 2008. | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Rumex longifolius DC. | ||||||||||||||
Njólinn var notaður sem lækningajurt og fersk njólablöð talin holl. Blöðin á njóla (heimilis njólablöðkur) kallast fardagakál og voru fyrr á tímum elduð sem kálgrautur og þótti gott að hafa túnsúrur saman við.
Einnig var hann notaður sem litunarjurt á Íslandi. Úr blöðum hans fæst grænn og sterkgulur litur.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.