From Wikipedia, the free encyclopedia
Nicolai Eigtved einnig þekktur sem Niels Eigtved (4. júní eða 22. júní, 1701 – 7. júní, 1754) var danskur arkitekt . Hann teiknaði m.a. Viðeyjarstofu. Hann innleiddi franskan rókokkó stíl í danska húsagerðarlist á árunum 1730 til 1740 og hannaði og byggði margar þekktar byggingar á sinni tíð. Hann var fyrsti danski stjórnandi Konunglega danska listaháskólans.
Eigtved lærði fyrst garðyrkju og fékk stöðu í görðunum við Friðriksborgarhöll um 1720. Í júlí 1723 gafst honum kostur á að ferðast erlendis sem konunglegur garðyrkjunemi. Hann fór til Berlínar og Dresden og fleiri staða í Þýskalandi, vann sem garðyrkjumaður og lærði þýsku. Eigtved dvaldi í tíu ár í Póllandi og vann fyrir þýska arkitektinn Matthäus Daniel Pöppelmann.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.