![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/04/NYC_subway-4D.svg/langis-640px-NYC_subway-4D.svg.png&w=640&q=50)
Neðanjarðarlestarkerfi New York-borgar
From Wikipedia, the free encyclopedia
Neðanjarðarlestarkerfi New York-borgar (New York City Subway) er léttlestarkerfi sem sett var á laggirnar árið 1904. Það er eitt elsta almenningssamgöngukerfi heims og mest notaða. 427 stoppistöðvar eru í hverfunum Manhattan, Brooklyn, Queens og Bronx. Kerfið er það lengsta í heiminum eða 399 km. Árið 2017 fóru 5,6 milljónir daglega að meðaltali í lestirnar. Um 40% lestarteinanna eru ofanjarðar þrátt fyrir nafnið.
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/0/04/NYC_subway-4D.svg/320px-NYC_subway-4D.svg.png)
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/56/R160_E_enters_42nd_Street.jpg/640px-R160_E_enters_42nd_Street.jpg)
Lestarkerfið hefur verið opið allan sólarhringinn. Undantekningar hafa t.d. verið stormurinn Sandy, Covid-19-ráðstafanir, slys og hryðjuverk.
Frá 2020 hefur einungis hægt að borga með kortunum MetroCard og hinu þráðlausa OMNY. Metrocard rann út 2023.