Móðuharðindin voru hörmungar eða áhrif náttúruhamfara sem urðu á Íslandi í Skaftáreldum 17831785. Móða eða eiturgufa lagðist á jörðina, gras sviðnaði og búfénaður féll. Talið er að um 75% búfjár hafi þá fallið og fimmti hver maður eða um 10.000 Íslendingar hafi dáið. Móðuharðindin hófust með eldgosi 8. júní 1783 í Lakagígum en þeir urðu til í einhverju mesta hraungosi á jörðunni á sögulegum tímum. Samtímalýsing eldsumbrotanna og áhrifa þeirra í nærliggjandi sveitum eru í Eldriti séra Jóns Steingrímssonar, síðar nefndur eldklerkur, sem hann lauk við að skrifa árið 1788.

Veðurfar breyttist á meðan á hörmungunum stóð. Gosið var svo kröftugt að brennisteinsoxíð náði upp í heiðhvolf og hiti lækkaði. Einnig minnkaði inngeislun sólar til jarðar vegna ösku. Áhrifa gossins gætti víða um heim. Hugsanlega má rekja uppskerubrest sem varð víða í Evrópu sumarið 1783 til gossins en slæmt sumar og kuldavetur í kjölfarið juku vandræði Frakka í aðdraganda frönsku byltingarinnar.

Heimildir

Wikiwand in your browser!

Seamless Wikipedia browsing. On steroids.

Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.

Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.