Mól
mælieining efnismagns / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mól er grunnmælieining SI-kerfisins fyrir efnismagn ("fjöldi af efni"), táknuð með mol. Eitt mól er skilgreint sem nákvæmlega 6,022 140 76×1023 einingar, t.d., atóma, sameinda, jóna eða rafeinda.
Núverandi skilgreining var tekin upp í nóvember 2018, leysir af eldri skilgreiningu (ekki sú fyrstu) en samkvæmt þeirri er mól fjöldi agna sem samsvarar fjölda frumeinda í 12 grömmum af kolefnissamsætunni 12C. Þessi fjöldi er kenndur við ítalska vísindamanninn Amadeo Avogadro og nefnist Avogadrosartala (stundum einnig tala Loschmidts).