![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c4/EuroMoldova.svg/langis-640px-EuroMoldova.svg.png&w=640&q=50)
Moldóva í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva
yfirlit um þátttöku Moldóvu í Eurovision / From Wikipedia, the free encyclopedia
Moldóva hefur tekið þátt í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 16 sinnum síðan að frumraun landsins í keppninni átti sér stað árið 2005. Besta niðurstaða landsins er þriðja sæti með SunStroke Project og laginu „Hey, Mamma!“ árið 2017.
Staðreyndir strax Ágrip, Tenglar ...
Moldóva | |
---|---|
Sjónvarpsstöð | Teleradio-Moldova (TRM) |
Söngvakeppni | Finala națională |
Ágrip | |
Þátttaka | 16 (11 úrslit) |
Fyrsta þátttaka | 2005 |
Besta niðurstaða | 3. sæti: 2017 |
Núll stig | Aldrei |
Tenglar | |
Síða Moldóvu á Eurovision.tv |
Loka
Fyrsta þátttaka Moldóvu árið 2005 reyndist árangursrík þar sem að Zdob și Zdub endaði í sjötta sæti. Landið hefur einnig endað í topp-10 með Natalia Barbu (2007) og DoReDoS (2018) í tíunda sæti. Moldóva hefur keppt í aðalkeppninni í 11 skipti.