![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/is/thumb/e/e8/Ms_logo.png/640px-Ms_logo.png&w=640&q=50)
Mjólkursamsalan
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mjólkursamsalan, skammstafað MS, er íslenskt hlutafélag í eigu samvinnufélaganna Auðhumlu og Kaupfélags Skagfirðinga sem sinnir sölu og vinnslu á mjólk og mjólkurafurðum. MS varð til í núverandi mynd við hagræðingu í mjólkuriðnaðinum sem hófst skipulega um miðjan tíunda áratuginn þegar stjórnvöld ákváðu að lækka þyrfti kostnað við vinnslu á mjólk.[1] [2] Sameinaðist rúmur tugur félaga í mjólkuriðnaði í færri einingar næsta áratuginn. [3] Mjólkursamsalan í núverandi mynd hefur starfað frá árinu 2007.[4] Elsta fyrirtækið í sameinuðu félagi MS er Mjólkursamlag KEA, sem stofnað var á sérstökum fulltrúaráðsfundi 4. september árið 1927, sem telst vera stofndagur MS.[5] Mjólkursamsalan notar 1-2% af þeim sykri sem fluttur er til Íslands árlega, eða um 150 til 300 tonn[6].
Mjólkursamsalan (MS) | |
![]() | |
Rekstrarform | Hlutafélag |
---|---|
Slagorð | Mjólkurvörur í sérflokki |
Stofnað | 4. september 1927 |
Staðsetning | Bitruhálsi 1, 110 Reykjavík |
Lykilpersónur | Pálmi Vilhjálmsson, forstjóri Elín M. Stefánsdóttir, Fellshlíð, stjórnarformaður |
Vefsíða | http://www.ms.is/ |