From Wikipedia, the free encyclopedia
Milestone ehf. er íslenskt fjárfestingarfélag í eigu systkinanna Karls Wernerssonar, Ingunnar Wernersdóttur og Steingríms Wernerssonar.
Milestone ehf | |
Rekstrarform | Hlutafélag |
---|---|
Stofnað | 1988 |
Staðsetning | Reykjavík, Ísland. Bresku Jómfrúreyjunum |
Lykilpersónur | Karl Wernersson, Ingunn Wernersdóttir, Steingrímur Wernersson |
Starfsemi | Eignarhaldsfélag |
Vefsíða | www.milestone.is |
Fyrirtækið var stofnað í mars 1988 og hét þá Deiglan-Árman. Fyrirtækið er að hluta til í eigu Leifturs ltd., sem er skráð í Bresku Jómfrúreyjunum, og er einnig í eigu Wernerssystkinanna.
Árið 2004 eignaðist fyritækið Apótek Austurbæjar ehf., Vesturbæjarapótek ehf. og Ísrann ehf. Nafninu var breytt í Milestone. Í apríl 2005 keypti Milestone 66.7% eignarhluta í Sjóvá-Almennum tryggingum hf..
Fyritækið átti hlut í Glitni banka hf. sem urðu nánast að engu í kjölfar bankahrunsins. Einnig átti það meirihluta hlutabréfa í Actavis Group hf. ásamt Lyf og heilsu hf. og hluta í Dagsbrún. Í lok árs 2005 námu eignir samstæðunnar um 80 milljörðum króna.
Í desember 2006 var tilkynnt um stofnun nýs fjárfestingarbanka, Askar Capital, sem Milestone væri kjölfestufjárfestir í.
Í kjölfar bankahrunsins 2008 hefur Milestone verið tæknilega gjaldþrota. 24. júní 2009 veitti héraðsdómur Reykjavíkur Milestone heimild til að leita nauðasamninga við lánardrottna sína, og verða þá líklega 85 af 90 milljörðum skulda félagsins afskrifaðir.
Í júlí 2009 gerði embætti sérstaks saksóknara húsleit í höfuðstöðvum Milestone ásamt dótturfélagi þess Sjóvá. Rannsóknin snýr að meintu stórfelldu fjármálamisferli sem tengist starfsemi Milestone og fjárfestingarstarfsemi Sjóvár, meðal annars að meintri misnotkun á bótasjóði tryggingarfélagsins.
Seamless Wikipedia browsing. On steroids.
Every time you click a link to Wikipedia, Wiktionary or Wikiquote in your browser's search results, it will show the modern Wikiwand interface.
Wikiwand extension is a five stars, simple, with minimum permission required to keep your browsing private, safe and transparent.