![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/9/92/Miguel_D%25C3%25ADaz-Canel_2022-11-22_%2528cropped%2529.jpg/640px-Miguel_D%25C3%25ADaz-Canel_2022-11-22_%2528cropped%2529.jpg&w=640&q=50)
Miguel Díaz-Canel
Forseti Kúbu / From Wikipedia, the free encyclopedia
Miguel Mario Díaz-Canel Bermúdez (f. 20. apríl 1960) er kúbverskur stjórnmálamaður sem hefur verið forseti Kúbu frá 19. apríl 2018. Titill hans var forseti ríkisráðsins til 10. október 2019. Hann var varaforseti Kúbu frá 2013 til 2018, meðlimur í stjórnmálanefnd kúbverska kommúnistaflokksins frá árinu 2003 og ráðherra æðri menntamála frá 2009 til 2012. Hann varð varaforseti ráðherraráðsins árið 2012 og fyrsti varaforseti ríkisráðsins þann 24. febrúar árið 2013.[1]
Miguel Díaz-Canel | |
---|---|
![]() Miguel Díaz-Canel árið 2022. | |
Forseti Kúbu[lower-alpha 1] | |
Núverandi | |
Tók við embætti 19. apríl 2018 | |
Forsætisráðherra | Manuel Marrero Cruz |
Varaforseti | Salvador Valdés Mesa |
Forveri | Raúl Castro |
Aðalritari kúbverska kommúnistaflokksins | |
Núverandi | |
Tók við embætti 19. apríl 2021 | |
Forveri | Raúl Castro |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 3. apríl 1960 (1960-04-03) (64 ára) Placetas, Villa Clara, Kúbu |
Stjórnmálaflokkur | Kommúnistaflokkur Kúbu |
Maki | Martha (skilin) Lis Cuesta |
Börn | 2 |
Háskóli | Háskóli Mörtu Abreu í Las Villas |
Starf | Stjórnmálamaður |
Undirskrift | ![]() |
Þann 19. apríl 2018 var Díaz-Canel valinn til að taka við af Raúl Castro sem forseti Kúbu. Hann var svarinn í embætti daginn eftir. Díaz-Canel er fyrsti forseti Kúbu frá árinu 1976 og fyrsti ríkisstjórnarleiðtoginn frá 1959 sem ekki er úr Castro-fjölskyldunni. Díaz-Canel tók jafnframt við af Castro sem aðalritari kommúnistaflokksins árið 2021.[2][3]