![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7f/Reykjav%25C3%25ADk_Austurstr%25C3%25A6ti_street_scene_2022.jpg/640px-Reykjav%25C3%25ADk_Austurstr%25C3%25A6ti_street_scene_2022.jpg&w=640&q=50)
Miðborg Reykjavíkur
From Wikipedia, the free encyclopedia
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/7/7f/Reykjav%C3%ADk_Austurstr%C3%A6ti_street_scene_2022.jpg/640px-Reykjav%C3%ADk_Austurstr%C3%A6ti_street_scene_2022.jpg)
Miðborg Reykjavíkur eða Miðbær Reykjavíkur er hverfi í Reykjavík sem inniheldur elstu hluta borgarinnar. Í miðborginni er miðstöð stjórnsýslu á Íslandi. Þar eru Alþingishúsið, Stjórnarráðshúsið og Hæstiréttur Íslands. Flest ráðuneytin eru með skrifstofur sínar við Arnarhól. Þar eru líka Safnahúsið og Þjóðleikhúsið við Hverfisgötu. Reykjavíkurhöfn er fyrir norðan Kvosina og þar við standa tónlistarhúsið Harpa og Sjávarútvegshúsið. Í miðborginni eru líka helstu kennileiti borgarinnar eins og Tjörnin, þar sem Ráðhús Reykjavíkur er staðsett, og Hallgrímskirkja efst á Skólavörðuholti. Í Kvosinni eru nokkur torg, þar á meðal Austurvöllur, Ingólfstorg og Lækjartorg. Við Austurvöll standa meðal annars Alþingishúsið, Dómkirkjan og Hótel Borg og við Lækjartorg stendur Héraðsdómur Reykjavíkur
Við Tryggvagötu í Kvosinni standa Tollhúsið, höfuðstöðvar Listasafns Reykjavíkur og Borgarbókasafnsins. Listasafn Íslands stendur við Tjörnina, við hliðina á Fríkirkjunni í Reykjavík. Önnur stórhýsi við Tjörnina eru Miðbæjarskólinn, Fríkirkjuvegur 11, Iðnó, Lækjargata 14a og Tjarnarbíó. Nokkrir almenningsgarðar eru líka við Tjörnina, eins og Hljómskálagarðurinn, Hallargarðurinn og Mæðragarðurinn. Í Kvosinni eru auk þess Fógetagarðurinn og Alþingishúsgarðurinn við Austurvöll. Sundhöll Reykjavíkur stendur við Barónsstíg og Landspítali er þar sunnan við. Einarsgarður er lítill skrúðgarður við enda Barónsstígs.
Austurstræti og Hafnarstræti í Kvosinni voru lengi helstu verslunargötur Reykjavíkur en þegar leið á 20. öld byggðust Bankastræti, Laugavegur og Skólavörðustígur upp sem verslunargötur. Þar er ennþá ein helsta miðstöð verslunar í Reykjavík, en með tilkomu verslunarmiðstöðva á borð við Kringluna á síðustu áratugum 20. aldar dró nokkuð úr aðsókn. Nýtt íbúðar- og verslunarhverfi, Hafnartorg, var reist við Tryggvagötu 2016-2020 samhliða framkvæmdum á austurbakka Reykjavíkurhafnar sem tengja það svæði við Hörpu.
Í hverfinu eru tveir grunnskólar; Tjarnarskóli og Austurbæjarskóli, og þrír framhaldsskólar; Menntaskólinn í Reykjavík, Tækniskólinn og Kvennaskólinn í Reykjavík. Háskóli Íslands í Vatnsmýri taldist áður til miðborgarinnar en síðustu ár hefur verið tilhneiging til að líta á Vatnsmýrina sunnan Miklubrautar sem sérstakan borgarhluta. Tónmenntaskóli Reykjavíkur er í Skuggahverfinu og dansskólinn Kramhúsið er við Bergstaðastræti.