Mexíkóska karlalandsliðið í knattspyrnu
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mexíkóska karlandsliðinu í knattspyrnu er stjórnað af Knattspyrnusambandi Mexíkó. Mexíkóska knattspyrnusambandið var stofnað árið 1927 og gekk það til liðs við FIFA árið 1929. Mexíkó hefur 16 sinnum tekið þátt í lokamóti Heimsmeistarakeppninnar. Niðurstöðurnar hafa yfirleitt verið vonbrigði ; það hefur venjulega endað með því að komast ekki áfram úr riðlakeppninni (1930-1966, 1978) eða hafa verið slegið út í fyrsta rothögginu ef það hefur komist áfram. Aðeins á heimsmeistarakeppninni 1986 á heimavelli náðu Mexíkóar að komast í 8.liða úrslit. Aftur á móti er Mexíkó, ásamt Brasilíu og Þýskalandi, eina liðið sem hefur komist á lokamóti í síðustu sjö heimsmeistarakeppnum.
Íþróttasamband | Federación Mexicana de Fútbol (Samband Mexíkóskrar knattspyrnu) | ||
---|---|---|---|
Álfusamband | CONCACAF | ||
Þjálfari | Diego Cocca | ||
Fyrirliði | Andrés Guardado | ||
Leikvangur | Estadio Azteca | ||
FIFA sæti Hæst Lægst | 12 (26. október 2023) 4 (maí-júní 2006) 40 (júlí 2015) | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
Mexíkó 3-2 Gvatemala (1. jan. 1923) | |||
Stærsti sigur | |||
Mexíkó 13-0 Bahamaeyjar (28. apríl 1987) | |||
Mesta tap | |||
Mexíkó 0-11 Englandi (10. maí 1961) | |||
Heimsmeistaramót | |||
Keppnir | 16 (fyrst árið 1930) | ||
Besti árangur | 8. liða úrslit (1970,1986) | ||
Copa America | |||
Keppnir | 10 (fyrst árið 1993) | ||
Besti árangur | Silfur (1993,2001) |
Heimavöllur liðsins er Estadio Azteca í Mexíkóborg. Liðið leikur aðallega í grænum treyjum og hvítum stuttbuxum. Gælunafn þeirra er El Tri, skammstöfun fyrir „El tricolor,“ (þrílitur). Mexíkó hefur verið gestgjafi HM tvisvar. Í fyrsta skipti var árið 1970 og í hitt skiptið árið 1986. Það eru líka einu skiptin sem Mexíkó hefur komist í fjórðungsúrslitin.