Maximilian von Baden
Kanslari Þýskalands (1867-1929) / From Wikipedia, the free encyclopedia
Maximilian fursti af Baden (Maximilian Alexander Friedrich Wilhelm; 10. júlí 1867 – 6. nóvember 1929), oft kallaður Max von Baden, var þýskur aðalsmaður, herforingi og stjórnmálamaður. Hann var erfinginn að hertogadæminu Baden og var í stuttan tíma kanslari Þýskalands í lok fyrri heimsstyrjaldarinnar. Hann sótti um vopnahlé fyrir hönd Þjóðverja í lok styrjaldarinnar í samræmi við fjórtán punkta Woodrows Wilson Bandaríkjaforseta. Til að samræmast punktunum breytti hann þýsku ríkisstjórninni í þingræðisstjórn með því að veita leiðtoga Jafnaðarmanna, Friedrich Ebert, kanslaraembættið og lýsa síðan einhliða yfir afsögn Vilhjálms 2. Þýskalandskeisara þann 9. nóvember 1918. Með þessu var Weimar-lýðveldið stofnað.
Staðreyndir strax Kanslari Þýskalands, Þjóðhöfðingi ...
Maximilian von Baden | |
---|---|
Kanslari Þýskalands | |
Í embætti 3. október 1918 – 9. nóvember 1918 | |
Þjóðhöfðingi | Vilhjálmur 2. |
Forveri | Georg von Hertling |
Eftirmaður | Friedrich Ebert |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 10. júlí 1867 Baden-Baden, stórhertogadæminu Baden |
Látinn | 6. nóvember 1929 (62 ára) Salem, Þýskalandi |
Þjóðerni | Þýskur |
Maki | María Lovísa af Hanover |
Börn | María Alexandra af Baden, Berthold af Baden |
Undirskrift |
Loka