![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/5/59/World_Food_Programme_Logo_Simple.svg/langis-640px-World_Food_Programme_Logo_Simple.svg.png&w=640&q=50)
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna
From Wikipedia, the free encyclopedia
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) er mannúðarsamtök á vegum Sameinuðu þjóðanna sem berjast gegn hungri. Höfuðstöðvar þeirra eru í Róm.[1] Markmið samtakanna eru í fjórum liðum. Að berjast gegn hungri alls staðar í heiminum. Bjarga lífum og lífsviðurværi í neyðartilfellum. Draga úr hættu á hungri og í þeim tilgangi virkja fólk, samfélög og ríki í því að uppfylla eigin matar- og næringarlegu þarfir. Draga úr vannæringu og koma í veg fyrir hungur á meðal heilla kynslóða.[2]
Staðreyndir strax Skammstöfun, Stofnun ...
Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna | |
---|---|
![]() Einkennismerki Matvælaáætlunar Sameinuðu þjóðanna | |
Skammstöfun | WFP |
Stofnun | 19. desember 1961; fyrir 62 árum (1961-12-19) |
Höfuðstöðvar | ![]() |
Framkvæmdastjóri | Cindy McCain |
Móðurfélag | Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna |
Vefsíða | www.wfp.org/ |
Loka
Árið 2013 dreifði Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna 3,1 milljón tonnum af mat til 80,9 milljón manna í 75 löndum og eru starfsmennirnir orðnir 14.000.[3] Matvælaáætlunin vann til friðarverðlauna Nóbels árið 2020.[4]