Maníla
Höfuðborg Filippseyja / From Wikipedia, the free encyclopedia
Maníla (Manila) höfuðborg Filippseyja, stendur á stærstu eyju eyjaklasans; Lúson við austanverðan Manílaflóa. Höfuðborgarsvæðið, Stór-Manílasvæðið tekur til 17 borga og sveitarfélaga og þar búa rúmlega 11 milljónir manns. Maníla ein og sér hefur 1,5 milljón íbúa og er næst fjölmennesta einstaka borg landsins næst á eftir Quezon borg fyrrum höfuðborg landsins sem telst og til stór Manílasvæðisins.
Á 16. öld óx Maníla frá því að vera fámennar búðir múslima á bökkum Pasig árinnar í aðsetur spænska nýlenduveldisins. Þónokkur hluti borgarinnar eyðilagðist í seinni heimsstyrjöldinni.