Mahatma Gandhi
From Wikipedia, the free encyclopedia
Mohandas Karamchand Gandhi (Devanagarí/Hindí: मोहनदास करमचन्द गांधी; gújaratí: મોહનદાસ કરમચંદ ગાંધી; 2. október 1869 – 30. janúar 1948), betur þekktur með virðingartitlinum Mahatma Gandhi, var pólitískur leiðtogi Indverja sem fór fyrir sjálfstæðishreyfingu Indlands og friðsamlegri baráttu Indverja fyrir sjálfstæði frá Bretum, hreyfingu sem tugir milljóna Indverja tóku þátt í. Allt hans líf hryllti hann við tilhugsuninni um ofbeldi og hryðjuverk. Heimspeki hans, Satyagraha (viðleitni til að komast að sannleika / sálarkraftur), var friðsamleg og hafði áhrif á friðsamlegar fjöldahreyfingar innan lands sem utan. Hann fæddist inn í vaishya-stétt, stétt kaupsýslumanna. Foreldrar hans voru Karamchand Gandhi og fjórða kona hans Putlibai. Gandhi giftist Kasturbai Makharji árið 1883 þau áttu fjóra syni; Harilal Gandhi, f 1888, Manilal Gandhi, f 1892, Ramdas Gandhi, f 1897 og Devdas Gandhi, f. 1900.
Mohandas Gandhi | |
---|---|
Fæddur | Mohandas Karamchand Gandhi 2. október 1869 Porbandar, Indlandi |
Dáinn | 30. janúar 1948 (78 ára) |
Dánarorsök | Myrtur |
Störf | Stjórnmálamaður |
Flokkur | Indverski þjóðarráðsflokkurinn |
Trú | Hindúismi |
Maki | Kasturba Gandhi |
Börn | Harilal Gandhi, Manilal Gandhi, Ramdas Gandhi, Devas Gandhi |
Foreldrar | Karamchand Gandhi, PutlibaiGandhi |
Undirskrift | |