Madríd
höfuðborg Spánar / From Wikipedia, the free encyclopedia
Madríd er höfuðborg Spánar og sjálfstjórnarhéraðs með sama nafni. Íbúar borgarinnar sjálfrar voru um 3,3 milljónir árið 2021 en með útborgum er íbúafjöldinn um 6,7 milljónir. Madríd, sem er stærsta borg Spánar, liggur inni í miðju landi á víðáttumikilli sléttu við fljótið Manzanares. Hún er efnahagslegur, menningarlegur og pólitískur miðpunktur landsins.
Staðreyndir strax Land, Sjálfstjórnarhérað ...
Madríd | |
---|---|
Hnit: 40°25′01″N 03°42′12″V | |
Land | Spánn |
Sjálfstjórnarhérað | Madríd |
Stofnun | 9. öld |
Stjórnarfar | |
• Borgarstjóri | José Luis Martínez-Almeida (PP) |
Flatarmál | |
• Samtals | 604,31 km2 |
Hæð yfir sjávarmáli | 650 m |
Mannfjöldi (2023) | |
• Samtals | 3.332.035 |
• Þéttleiki | 5.514/km2 |
Tímabelti | UTC+1 (CET) |
• Sumartími | UTC+2 (CEST) |
Póstnúmer | 28001–28080 |
Vefsíða | madrid |
Loka
Borgin hefur verið höfuðborg frá því á 16. öld og á síðari tímum hefur hún verið mikilvæg miðstöð verslunar og iðnaðar. Í hjarta Madrid er torgið Puerta del Sol og út frá því liggja allar aðalgötur borgarinnar. Nýrri borgarhverfi eru í austurhlutanum.