Mörgæsir
ættbálkur ófleygra fugla / From Wikipedia, the free encyclopedia
Mörgæsir (fræðiheiti: Sphenisciformes) er ættbálkur ófleygra fugla. Til eru sautján tegundir af mörgæsum. Mörgæsir eru ófleygar og lifa flestar í svalari hluta Suður-Íshafsins. Skrokkurinn er svartur á baki og hvítur að framan og þær hafa stutta en sterka fætur aftarlega á skrokknum. Talið er að mörgæsir eyði allt að þremur fjórðu hlutum ævi sinnar í sjó enda eru þær miklir sundgarpar. Mörgæsir eru kjötætur og fæða þeirra er aðalega lítil sjávardýr.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Ættkvíslir ...
Mörgæsir | ||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Keisaramörgæsir | ||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||
| ||||||||||||
Ættkvíslir | ||||||||||||
| ||||||||||||
Loka
Stærsta mörgæsin er keisaramörgæs en þær geta orðið allt að 21-40 kg og um 120 cm. á hæð. En sú minnsta er dvergmörgæs, þær vega aðeins 1-1,8 kg og eru minni en sumar endur.