Lönd eftir landsframleiðslu (nafnvirði)
From Wikipedia, the free encyclopedia
Lönd eftir landsframleiðslu (nafnvirði) er listi yfir lönd og nokkrar hjálendur eftir vergri landsframleiðslu miðað við markaðsvirði (nafnverð). Þessar tölur taka ekki með í reikninginn ólíkt verðlag í mismunandi löndum, og þær geta verið mjög breytilegar frá ári til árs þar sem þær eru háðar gengi gjaldmiðla í hverju landi fyrir sig. Gengisbreytingar hafa því mikil áhrif á stöðu landanna innbyrðis frá ári til árs. Með því að kaupmáttarjafna landsframleiðsluna má koma í veg fyrir þessar sveiflur, en listi yfir lönd eftir landsframleiðslu (KMJ) er matskenndari en þar sem miðað er við nafnvirði.
Listinn er þrefaldur og sýnir tölur frá þremur ólíkum stofnunum, AGS, Heimsbankanum og tölfræðideild Sameinuðu þjóðanna.