![cover image](https://wikiwandv2-19431.kxcdn.com/_next/image?url=https://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c8/Lundi2.jpg/640px-Lundi2.jpg&w=640&q=50)
Lundi
fuglategund af svartfuglaætt / From Wikipedia, the free encyclopedia
Lundi (fræðiheiti: Fratercula arctica) er fugl af svartfuglaætt, og af ættkvísl lunda. Hann gengur undir ýmsum gæluheitum og er stundum kallaður „litli munkur í norðri“ eða „litli bróðir í norðri“. Algengt er að lundinn sé kallaður prófastur sökum útlits og hátta. Lundaunginn er kallaður kofa en í Vestmannaeyjum gengur hann undir heitinu lundapysja. Lundinn er algengastur við strendur Íslands og er talið að 60% af öllum stofninum verpi við Ísland. Fuglinn verpir í stórum þyrpingum í holur sem þeir grafa í jarðveginn. Svartfuglum á norðurhveli jarðar svipar nokkuð til mörgæsa á suðurhveli, að líkamsbyggingu og litasamsetningu. Þrjár lundategundir eru til í heiminum. Lundi er sú tegund sem lifir hér við land.
Staðreyndir strax Vísindaleg flokkun, Tvínefni ...
Lundi | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
![]() Lundi (Fratercula arctica)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Fratercula arctica (Linnaeus, 1758) | ||||||||||||||
Loka
![Thumb image](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/d/d2/Fratercula_arctica_arctica_MHNT.ZOO.2010.11.146.6.jpg/640px-Fratercula_arctica_arctica_MHNT.ZOO.2010.11.146.6.jpg)